#KLUBBURINNGEYSIR
Með þér út í lífið
Klúbburinn Geysir starfar eftir hugmyndafræði Clubhouse International og er tilgangur hans að virkja félaga Klúbbsins til þátttöku í samfélaginu. Það er gert með því að halda uppi vinnumiðuðum degi með félögum, þar sem eru í boði fjölbreytt verkefni, sem öll miðast að rekstri klúbbsins.
Brú til betra lífs
Virðing - Víðsýni - Vinátta
Við bjóðum velkomna þá sem eiga eða hafa átt við geðræn veikindi að stríða, til að vinna uppbyggilegt starf á jafningjagrundvelli með það að markmiði að auka samfélagslega þátttöku og efla lífsgæði.
Þetta gerum við með því að:
- Vera öruggur samastaður
- Hafa fjölbreytt verkefni á vinnumiðuðum degi
- Efla sjálfstraust með því að taka tillit til styrkleika, áhuga og getu hvers og eins hverju sinni
- Veita stuðning í námi og atvinnuleit
- Bjóða tímabundin atvinnutækifæri
Samvinna – Samræður – Samhljómur
Geðheilsa er líka heilsa
Við bjóðum velkomna þá sem eiga eða hafa átt við geðrænar áskoranir að stríða. Hafðu endilega samband við okkur og komdu í kynningu.
Við tökum vel á móti þér
Félagsleg dagskrá og fréttir
- Fréttir og félagsleg dagskrá
- Félagsleg dagskrá
- Fréttir
- Uncategorized
Húsfundarstiklur 06.05.24
Fyrirlestur um Meðvirki og mannleg samskipti
Borgarsögusafnið
Lokað 1. maí
Ráðstefna í Stokkhólmi 2024
Ingrid Kuhlman
soundcloud.com/hladvarp-geysis/husfundarstiklur-060524 ... Sjá fleiriSjá færri
- likes 0
- Shares: 0
- Comments: 0
0 CommentsComment on Facebook
Lokað 1. maí - Klúbburinn Geysir ... Sjá fleiriSjá færri
Lokað 1. maí - Klúbburinn Geysir
1. maí er að sjálfsögðu Verkalýðsdagurinn okkar og að því gefnu verður Klúbburinn lokaður þennan dag. Hlökkum til að sjá ykkur strax aftur 2. maí!0 CommentsComment on Facebook
Borgarsögusafnið - Klúbburinn Geysir ... Sjá fleiriSjá færri
Borgarsögusafnið - Klúbburinn Geysir
Við leggjum leið okkar í Borgarsögusafnið á fimmtudaginn 2. maí næstkomandi, á Landnámssýninguna með leiðsögn og í fylgd hennar Sabelu okkar.0 CommentsComment on Facebook
Góðan daginn í dag ætlum við að fá okkur grænmetissúpu í hádeginu ,svo er auðvitað unnið í öllum deildum. ... Sjá fleiriSjá færri
1 CommentComment on Facebook
Geysir er vottað klúbbhús
Klúbburinn Geysir er vottað klúbbhús af Clubhouse International
Klúbbhúsahreyfingin hófst í New York árið 1948 er lítill hópur sjúklinga sem útskrifaðir voru frá stórum ríkisspítala, ákvað að hittast reglulega og reyna að vinna bug á einangrun og einmanaleika sem hrjáir marga geðsjúklinga. Þegar fjöldi þeirra jókst varð sífellt erfiðara að hittast á kaffihúsum eða bókasöfnum, svo þeir tryggðu sér fjármagn fyrir húsnæði og einum starfsmanni árið 1948. Í bakgarðinum var gosbrunnur og því var klúbburinn skírður Fountain House. Velgengni klúbbsins vakti mikla athygli og fór hann að verða fyrirmynd annarra samtaka innan Bandaríkjanna.