Hvatningarverðlaun ÖBÍ
Óskað er eftir tilnefningum til hvatningaverðlauna Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ) 2014.
Verðlaunaflokkarnir eru þrír, flokkur:
1. Einstaklinga
2. Fyrirtækja/stofnana
3. Umfjöllunar/kynningar
Veitt þeim sem þykja hafa skarað fram úr og endurspeglað nútímalegar áherslur um jafnrétti, sjálfstætt líf og þátttöku fatlaðra í samfélaginu og stuðlað að einu samfélagi fyrir alla.
Vinsamlegast sendið tilnefningar rafrænt á eyðublaði sem finna má á heimasíðu ÖBÍ á slóðinni: http://www.obi.is/um-obi/hvatningarverdlaunOBI/tilnefningar2014eydublad/
Einnig má prenta eyðublaðið út og senda í hefðbundnum pósti til Báru Snæfeld starfsmanns nefndarinnar á skrifstofu ÖBÍ, Hátúni 10, 105 Reykjavík.
Verðlaunin verða afhent í Silfurbergi, Hörpu, 3.desember á alþjóðadegi fatlaðra. Óskað er eftir tilnefningum fyrir 15. september 2014.