Starfsmenn Geðheilsuteymanna komu í kynningu
“Í apríl 2016 var samþykkt á Alþingi þingsályktun um stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum
til fjögurra ára. Eitt af aðalmarkmiðum þeirrar áætlunar var að þjónusta við einstaklinga með
geðraskanir sé samþætt og samfelld. Í því samhengi er tiltekið að fólk sem glímir við geðröskun hafi
aðgang að þverfaglegu teymi heilbrigðis- og félagsþjónustu sem komi að greiningu og meðferð. Því
verði náð fram með fjölgun geðheilsuteyma á höfuðborgarsvæðinu og nýjum teymum komið á fót í
þeim landshlutum þar sem þau eru ekki til staðar. Teymin vinni á grundvelli þarfagreiningar og eftir
hugmyndafræði valdeflingar.”
Úr skýrslu samráðshóps 2017 Um stofnun geðheilsuteyma

Á myndinni eru fr.v. Íris, Bergþór, Halldór, Hólmfríður, Mikael félagi í Geysi, Helena og Íris Björk